Well...

...þá er ég orðin grasekkja. Og verð það þangað til á sunnudag.

Ókei, ég á yndislegan mann, alveg brjálæðislega bestur í heimi en spurning um að nýta bara tækifærið og skemmta mér alla helgina? Það er nefnilega ekki hægt að draga hann niður í bæ og dansa. Hann dansar nefnilega ekki. Punktur. Vesen.

Svo er líka spurning um að gera dót sem ég geri ekki þegar hann er heima. Svosem:

  1. Dreifa úr fötunum mínum yfir allt rúmið (hans megin líka), uppá kommóðu og jafnvel náttborðin líka! Skilja handklæðin eftir á herbergisgólfinu eftir sturtu, oh ég er svo villt! (Ok, oft eru föt svolítið dreifð um herbergið en reyni að láta það vera á afmörkuðu svæði, en núna... legg ég allt herbergið undir mig!)
  2. Hafa kjúkling í matinn. Alla dagana. Og salat og Sesarsósu.
  3. Blasta næntís tónlist ógeðslega hátt... líka allan daginn og öll kvöld.
  4. Finn örugglega eitthvað meira sniðugt að gera...


Ég er ekkert bæld ef þið haldið það og hann er ekkert brjálæðislegur snyrtipinni sem ekki má anda á, en þegar maður er giftur þarf maður að taka tillit til náúngans. Reyna að dempa aðeins gallana, fínpússa alla sorahegðun, kompromæsa og allt það. 

En núna sé ég dásamlegt tækifæri í hendi mér, fæ að vera subbulegi lúðinn sem ég er innst inni í heila fjóra daga!  

Vegna þess að stemmíngin býður upp á það ætla ég að bjóða ykkur, kæru lesendur upp á menningarefni frá tíunda áratugnum:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehehe ég skil þig svo vel ;) ég geri nákvæmlega það sama og finnst ég gasalega villt, hahaha borða kvöldmat þegar ég vil, og þá eitthvað syndsamlegt og fæ þvílíkan valkvíða á endanum og kaupi helst allt sem mig langaði í. Horfa á vælumyndir og kellingarstöff í sjónvarpinu. Dreifa úr fötum !!! HELL YEAH!! út um allt, rosa þægilegt - svo er gefið í og tekið til korter fyrir heimkomu makans :D

Hið ljúfa líf í fáeina daga, láttu það eftir þér :D

Svava O'Brien (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 11:18

2 identicon

ahhahahahahaha

N-trance rokkar, they don´t make music like that anymore!!!!

Binni (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 13:17

3 Smámynd: Lovísa

Hahahaha

Lovísa , 11.4.2008 kl. 10:42

4 identicon

UUUUU LOL :D ...... he he he djókur. Þú og N-Trance, gerist ekki betra. En við verðum að finna 90's ball í sumar og dansa af okkur Rassinn ! Your thanking god it's friday and you just got payed, now you can party the night away til the brake of day !:D (make that money) ..... kjáni

Guðrún (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 15:07

5 identicon

Hihi sæta

Líst vel á þig dúlla.  Djamma bara feitt á meðan kalli er í burtu.  Vildi að ég væri með þér akkurat núna og engir óþægilegir háhælaðir skór sem ekki hægt er að dansa í,,, sko dama,,hehe

Vona að ég komist eitthvað á klakann í sumar eða haust og þá förum við eitthvað saman, ekki spurning.  Skemmtu þér hrikalega vel.

Fullt af knúsum frá Boston

Inga

Inga í Boston (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband