Löngu hætt að fara í bíó

Ég hætti að fara í bíó fyrir löngu.

Það er bara engann veginn skemmtun í mínum huga að sitja fyrir framan risaskjá með hljóðið svo hátt stillt að ég hrekk í kút í hvert skipti sem eitthvað markvert gerist í myndinni. Láta bjóða mér uppá það að það sé slökkt á myndinni í kannski svaka spennusenu í miðri mynd og jafnvel byrjar myndin ekki einu sinni á sama stað aftur.

Að borga t.d 650kr fyrir lítið popp, kókdreitil og súkkulaðistykki eru ekki kostakjör og svo eru kannski unglingakjánar að trufla mann með blaðri í síma, sms pípi, flissi og almennu veseni. Kannski er ég bara orðin svona gömul?

Að fara í bíó er góð skemmtun...

...Eh nei!! 


mbl.is Bíómiðinn kominn upp í 1.000 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

Mikið óskaplega er ég sammála þér þarna!  Finnst fátt leiðinlegra ... vil bara vera heima í rólegheitum og friði að horfa á mína bíómynd  

Rannveig Lena Gísladóttir, 4.6.2008 kl. 12:54

2 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Mæli bara með popp og kók heima í stofu! Miklu huggulegra heima!

Sigurlaug B. Gröndal, 4.6.2008 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband