Fór í bíó, langar að reykja og lita á mér hárið

Er að undirbúa fall, þrátt fyrir að hafa lesið mig í kaf af "hættareykjabókum". Helvítis heita helvíti, er bara ekki tilbúin í þetta!

Er ekki tilbúin til þess að fitna. Finn að mig langar meira að borða, narta, mönsa... Neim itt. Helvítis.

Svo skelltum við Húsbandið okkur á bíó. Fórum að sjá mynd sem ég var sannfærð um að væri frekar klén stelpuræma en annað kom á daginn. Ótrúlega fyndin mynd með fullt fullt af strákahúmor. Sem mér finnst líka ótrúlega fyndið. Myndin heitir Knocked up. Mæli með henni.

Svo er ég komin með rót. Ákvað að gera svolítið sem ég hét að ég myndi aldrei gera aftur. Lita hárið á mér sjálf. Kostaði bara sautjánhundruð og eitthvað í stað þess að borga tólfþúsund.  Svona er ég dugleg að spara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Gott að heyra að þig langaði bara að reykja en gerðir ekkert! Þetta er vont en það venst, svo er það svo skrítið að einn daginn ertu bara alveg búin að gleyma því að þú hafir reykt. Vonandi ertu flott um hárið

Valgerður Halldórsdóttir, 12.9.2007 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband