Morgunhani!

Ég hef alltaf haldið því statt og stöðugt fram að ég sé A manneskja. Það sannaðist enn og aftur að eftir morgunskemmtunina í gærmorgun, svanasöng hins yndislega unga nágranna, að svo sé.

Ég var sofnuð rétt fyrir 22:00 og vaknaði brjálað hress kl 4:45. Er þetta ekki bara rugl?  Frábært, ég ætlaði svo sannarlega að reyna að hemja hressleikann og halda áfram að sofa en ekkert gekk því þetta frábæra lag ómaði á hæsta styrk í hausnum á mér. http://youtube.com/watch?v=3LW8dKMBuUI

Það var því ekkert annað að gera í stöðunni en að halda bara áfram að vera svona ógeðslega glaðvakandi og bíða eftir því að leikfimimiðstöðin mín opnaði kl 6.

Svo ég var nákvæmlega kl 6:02 hlaupandi eins og klikkæðingur með þetta lag á hæsta styrk.  (Náði núna að hlaupa á 9.2 á heilar 8 1/2 mínútu samfleytt)

Mæli annars með þessu lagi http://youtube.com/watch?v=x5dm7AYZ-tg þegar maður þarf að rífa sig áfram á hlaupabrettinu LoL

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Vov, bara brjáluð stemmning! Þó að ég geti nú verið ærið hressa á morgnana, þá kemst ég ekki með tærnar þar sem þú hefur hælana þessa dagana. Hvernig ferðu að þessu?

Sigurlaug B. Gröndal, 28.9.2007 kl. 15:37

2 Smámynd: Lovísa

Úff, hvað ég vildi að ég væri svona hress

Lovísa , 29.9.2007 kl. 21:09

3 identicon

Neih blessaður vinur minn

Alltaf gaman að lesa svona blogg það verður allavegana einhver að vera duglegur í þessu ekki er ég það ég held að ég hafi búið til 2-3 síður alltaf hætt eftir smá tíma líf mitt er ekki það skemmtilegt að ég þurfi að segja öllum frá því ... lol  en velkomin í líkamsræktarhópinn þú ert bara mega dugleg mar svona á þetta að vera þú veður komin með bakteríuna eftir smá tíma he he  bara mega stuð í ræktinni.... en jæja vinur minn ég ætla ekki að vera skrifa neitt meira hérna gæti endað í einhverjari vitleysu  við sjáumst vonandi fljótlega ...  he he

Lov jú

Erla

Erlitzzz (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband